|
|
| zazou |
Innlegg: Mið Sep 01, 2004 9:24 pm |
|
|
Blýfætlingur
Skráður: 31 Ágú 2004
Innlegg: 1731
Staðsetning: London UK
|
Hér er smá kynning á bílnum mínum sem er Jaguar XJ12 Sovereign árgerð 1989.
Vinsæll í brúðkaup:Mynd á huga
Hann var upphaflega fluttur inn frá Þýskalandi af Patreki Jóhannessyni handboltakappa árið 1999.
Ég var búinn að stefna á svona bíl í 10 ár og sé ekki eftir því ári sem ég hef átt þennan. Hann er ekinn um 190þ km. og með þjónustubók frá upphafi.
Vélin er 5.3 lítra Jaguar 12 cylindra SOHC vél 60° ál vél sem er gefin upp 295 hö (217kw) og 433nm við 3250 snúninga með 12.5:1 þjöppu.
Allt þetta knýr tæplega tveggja tonna dreka.
Samkvæmt mínum upplýsingum eru til 2 aðrir V12 bílar í þessu boddíi (báðir '89) en þeir eru hins vegar með mengunarvarnarbúnaði sem stelur heilum 30 hrossum!
Bíllinn er með diskabremsur allan hringinn sem bílaframleiðandinn var fyrstur með í alla sína bíla.
Afturbremsurnar eru þó nokkuð sérstakar að því leiti að diskarnir eru inni við drifkúlu og því ekki sjáanlegir á bakvið felgu. Ástæða þessa er betri fjöðrun þar sem það er minni massi út við hjól.
Söguhornið:
Þessi bíll er af gerðinni XJ og meðal Jaguarmanna nefnist hann Sería 3 (þriðja andlitslyftingin frá 1968).
Framleiðsla á Seríu 3 átti að ljúka 1986 en vegna þess að bíllinn sem tók við gat ekki tekið við V12 vél var 'tólfan' framleidd fram til '92.
Sagan á bakvið af hverju þurfti að framleiða seríu 3 er sú að þegar var verið að hanna arftakann var Jaguar Cars Ltd. hluti af Britsh Leyland skrímslinu og Jaguarmenn óttuðust að setja ætti Rover V8 í nýja bílinn.
Því hönnuðu þeir hann þannig að ekki væri hægt að koma fyrir V-laga vél. Þeir sátu svo uppi með það '86 (og ekki syrgi ég það því mér finnst þetta mikið fallegri bíll en sá sem eftir kom).
Ég hef látið skipta um allar hjólalegur og bremsudiska + klossa ásamt öðru smávægilegu en hann hefur aldrei þurft að stoppað hjá mér.
Hér eru svo tengingar á tvær greinar sem ég skrifaði um XJ Series III og V12 vélina, ásamt
stórgóðri og skemmtilegri grein eftir Kalla. |
Síðast breytt af zazou þann Fös Okt 14, 2005 12:35 am, breytt 5 sinnum samtals _________________ Brynjar
former cars:
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign |
|
| Til baka efst á síðu |
|
| Kalli |
Innlegg: Mið Sep 01, 2004 10:35 pm |
|
|
Blýfótur
Skráður: 12 Ágú 2004
Innlegg: 4375
Staðsetning: Sverige
|
Þetta er ábyggilega einn flottasti lúxusbíll landsins. Hef reyndar rétt séð hann þjóta hjá eftir að þú keyptir hann, en af lýsingum er hann ekki verri nú en hann var áður og þá var hann verulega flottur!  |
_________________ Karl Gunnarsson
Daniel Jalkut skrifaði: My own design knowledge is bare-to-middling, but I know when something looks like ass. |
|
| Til baka efst á síðu |
|
| jonthor |
Innlegg: Fim Sep 02, 2004 6:50 am |
|
|
|
Þriðji gír
Skráður: 30 Ágú 2004
Innlegg: 75
Staðsetning: París, Frakkland
|
|
| Til baka efst á síðu |
|
| bebecar |
Innlegg: Fim Sep 02, 2004 1:35 pm |
|
|
|
Blýfótur
Skráður: 12 Ágú 2004
Innlegg: 6343
Staðsetning: Álaborg
|
Ég er svo heppinn að hafa fengið rúnt í þessum líka -
þessi bíll er 100% að innan og nánast að utan líka og alveg ótrúlega smooth tæki.... |
_________________ Alfa Romeo Duetto 1967
BMW R100RS (RennSport) 1994
Range Rover 4.6 HSE 1997 (P38)
Ingvar Örn |
|
| Til baka efst á síðu |
|
| Svezel |
Innlegg: Fös Sep 03, 2004 11:37 am |
|
|
|
Sjötti gír
Skráður: 30 Ágú 2004
Innlegg: 883
Staðsetning: 127.0.0.1
|
| Gríðarlega svalur bíll. Gamla Jaguar lookið er náttúrlega klassík og V12 er alvöru. |
_________________ Sveinbjörn
BMW E36/7s Z3 M-Roadster
BMW E36 M3 US
Yamaha FZR600
Passat TDi |
|
| Til baka efst á síðu |
|
| sindrib |
Innlegg: Fös Sep 03, 2004 12:13 pm |
|
|
Blýfætlingur
Skráður: 31 Ágú 2004
Innlegg: 1019
Staðsetning: Fáskrúðsfjörður
|
ég keyrði einu sinni 6 cyl sovereign 94 árg,
þetta er alveg ný upplifun, ég hef ekki enn keyrt bíl sem var eins auðvelt og gott að keyra. |
_________________ Sindri Bessason
mmc colt 1992
dodge ram van 350 custom
1997 Toyota Carina (í notkun)
Já það er kreppa hjá mér... |
|
| Til baka efst á síðu |
|
| MR.BOOM |
Innlegg: Mán Sep 06, 2004 1:41 pm |
|
|
|
Fimmti gír
Skráður: 31 Ágú 2004
Innlegg: 492
Staðsetning: Í landi fílanna
|
Án efa falllegasti bíll sinnar tegundar hér á landi.
Mig hefur lengi vel langað til að roda (hot rod) svona bíl. |
_________________ Lancia Delta - Saab 900aero - Mazda 323
Sæmundur Eric. |
|
| Til baka efst á síðu |
|
| zazou |
Innlegg: Mán Sep 06, 2004 3:24 pm |
|
|
Blýfætlingur
Skráður: 31 Ágú 2004
Innlegg: 1731
Staðsetning: London UK
|
MR.BOOM skrifaði: Án efa falllegasti bíll sinnar tegundar hér á landi.
Mig hefur lengi vel langað til að roda (hot rod) svona bíl.
Ertu að tala um að 'Chevy-a' hann?
Ég átti svoleiðis bastarð á undan og það er himinn og haf á milli V12 og 350sb - but each to his own.
Það eru til 2 XJ með 350 og einn MK2 (held ég) með einhverri Chevy vél og blower. |
_________________ Brynjar
former cars:
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign |
|
| Til baka efst á síðu |
|
| F2 |
Innlegg: Þri Sep 07, 2004 2:24 pm |
|
|
Sjötti gír
Skráður: 31 Ágú 2004
Innlegg: 699
|
| zazou... varst þú fyrir aftan mig á sunnudagskvöldið á ljósunum á miklubraut/kringlumyrabraut.....????? Btw virkilega fallegur jaguar hjá þér |
_________________ Porsche 944 '86 *Turbo Project*
Porsche 2x 924
Porsche 2x 924 Turbo
Porsche 964 C4 93'
Porsche 928S '85 *Strosek*
Tony Kart 125 Gokart *Orange Motherfucker*
Porsche 944 QT *Konumobilen*
944 S2 x2 |
|
| Til baka efst á síðu |
|
| zazou |
Innlegg: Þri Sep 07, 2004 4:05 pm |
|
|
Blýfætlingur
Skráður: 31 Ágú 2004
Innlegg: 1731
Staðsetning: London UK
|
F2 skrifaði: zazou... varst þú fyrir aftan mig á sunnudagskvöldið á ljósunum á miklubraut/kringlumyrabraut.....????? Btw virkilega fallegur jaguar hjá þér
Það var ég já.  |
_________________ Brynjar
former cars:
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign |
|
| Til baka efst á síðu |
|
| F2 |
Innlegg: Þri Sep 07, 2004 4:23 pm |
|
|
Sjötti gír
Skráður: 31 Ágú 2004
Innlegg: 699
|
zazou skrifaði: F2 skrifaði: zazou... varst þú fyrir aftan mig á sunnudagskvöldið á ljósunum á miklubraut/kringlumyrabraut.....????? Btw virkilega fallegur jaguar hjá þér
Það var ég já. 
plís segðu mér að þú hafir verið á aðeins meira enn á dólinu..... var ekki alveg viss hvort að þú værir á fullri gjöf á eftir mér.... |
_________________ Porsche 944 '86 *Turbo Project*
Porsche 2x 924
Porsche 2x 924 Turbo
Porsche 964 C4 93'
Porsche 928S '85 *Strosek*
Tony Kart 125 Gokart *Orange Motherfucker*
Porsche 944 QT *Konumobilen*
944 S2 x2 |
|
| Til baka efst á síðu |
|
| zazou |
Innlegg: Þri Sep 07, 2004 10:34 pm |
|
|
Blýfætlingur
Skráður: 31 Ágú 2004
Innlegg: 1731
Staðsetning: London UK
|
F2 skrifaði: plís segðu mér að þú hafir verið á aðeins meira enn á dólinu..... var ekki alveg viss hvort að þú værir á fullri gjöf á eftir mér....
Mjújú ég viðurkenni alveg að þetta var enginn sparakstur þarna á Miklubrautinni.
Það verður að pústa út annað slagið.  |
_________________ Brynjar
former cars:
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign |
|
| Til baka efst á síðu |
|
| F2 |
Innlegg: Mið Sep 08, 2004 12:06 am |
|
|
Sjötti gír
Skráður: 31 Ágú 2004
Innlegg: 699
|
zazou skrifaði: F2 skrifaði: plís segðu mér að þú hafir verið á aðeins meira enn á dólinu..... var ekki alveg viss hvort að þú værir á fullri gjöf á eftir mér....
Mjújú ég viðurkenni alveg að þetta var enginn sparakstur þarna á Miklubrautinni.
Það verður að pústa út annað slagið. 
já.. þetta kom mér svoldið á óvart |
_________________ Porsche 944 '86 *Turbo Project*
Porsche 2x 924
Porsche 2x 924 Turbo
Porsche 964 C4 93'
Porsche 928S '85 *Strosek*
Tony Kart 125 Gokart *Orange Motherfucker*
Porsche 944 QT *Konumobilen*
944 S2 x2 |
|
| Til baka efst á síðu |
|
| Hlynzi |
Innlegg: Lau Sep 18, 2004 9:27 am |
|
|
|
Blýfætlingur
Skráður: 16 Sep 2004
Innlegg: 1071
Staðsetning: Grafarvogur
|
Mjög fallegur bíll sem þú ert með. Og þetta er það sem ég kalla ekta jagúar lúkkið. Nýju bílarnir frá þeim (allavegana einn þeirra) er hræðilegur.
Og ekki skemmir 5.7 lítrar fyrir snerpunni. |
_________________ Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, sílsar í vetur og fl.mestmegnis AMG
Toyota Corolla '93, Mercedes Benz - 230E x 4 , Volvo 740 GL , Subaru Justy - 4x4 |
|
| Til baka efst á síðu |
|
| zazou |
Innlegg: Mán Sep 20, 2004 9:29 pm |
|
|
Blýfætlingur
Skráður: 31 Ágú 2004
Innlegg: 1731
Staðsetning: London UK
|
Hlynzi skrifaði: Og ekki skemmir 5.7 lítrar fyrir snerpunni.
Takk. Smáatriði en V12an er 5.3 (5343cc), Chevy hlunkurinn sem ég átti áður var hins vegar með 5.7 V8.
Tólfan var síðar stækkuð uppúr '90 og þá í 6.0. |
_________________ Brynjar
former cars:
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign |
|
| Til baka efst á síðu |
|
|
|